Unglingadómaranámskeið hefst 27. október
Unglingadómaranámskeið verður haldið í október/nóvember og er að mestu leyti um heimanám að ræða. Þátttakendur fá námsefnið sent í þrennu lagi með tölvupósti (þrjá föstudaga í röð,fyrst 27/10), en námskeiðinu lýkur með prófi 18. nóvember.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 26. október.
Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1990) og eldri.
Fyrirkomulag
Þátttakendur fá námsefnið sent í tölvupósti í þrennu lagi, 27/10, 3/11 og 10/11. Námskeiðinu lýkur síðan með prófi 18/11.
Próf
Prófið sjálft verður ekki þreytt í gegnum netið, heldur fer próf fram í Reykjavík og víðar ef þörf krefur.
Þátttakendur
Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1990) og eldri.
Skráning
Hægt er að skrá sig með tölvupósti, halldor@ksi.is eða í síma 510-2900 í síðasta lagi 26/10. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram: Nafn, heimilisfang, kennitala, sími, GSM, netfang, félag.
Þátttökugjald
kr. 3.000
Greiðsla
Greiða skal námskeiðsgjaldið inn á reikning 0101-26-700400, fyrir 27/10 og senda staðfestingu til KSÍ (Kennitala KSÍ er 700169-3679).
Vinsamlegast athugið!
Félög eru vinsamlegast beðin um að vanda skráningar því mikið hefur verið um að á námskeiðið hafi verið skráðir nemendur sem ætla sér aldrei að ljúka námskeiðinu. Þetta hefur haft í för með sér mikla óþarfa vinnu fyrir skrifstofu KSÍ.