Tveir leikir við Englendinga hjá U19 kvenna
Íslenska U19 kvennalandsliðið leikur tvo vináttulandsleiki við Englendinga 21. og 23. nóvember. Leikirnir fara fram í hinni nýju Akraneshöll og Egilshöllinni. Leikirnir eru undirbúningur fyrir úrslitakeppni EM hjá U19 kvenna er fer fram hér á landi næsta sumar.
Í Akraneshöllinni fer leikurinn fram 21. nóvember, eins og áður sagði og hefst kl. 18:00. Seinni leikurinn fer fram í Egilshöllinni og hefst sá leikur kl. 20:00. Aðstæður fyrir áhorfendur eru hinar ágætustu í báðum þessum höllum og því upplagt fyrir áhorfendur til þess að mæta og hvetja stelpurnar.