Úrskurður í máli Stjörnunnar gegn Hannesi Þór Halldórssyni
Samninga- og félagaskiptanefnd hefur kveðið upp úrskurð í máli Stjörnunnar gegn leikmanninum Hannesi Þór Halldórssyni. Stjarnan andmælti uppsögn Hannesar Þórs á leikmannasamningi aðila, en leikmaðurinn krafðist þess að nefndin staðfesti uppsögnina.
Úrskurðarorð samninga- og félagaskiptanefndar voru þessi:
Uppsögn Hannesar Þórs Halldórssonar á leikmannasamningi við knattspyrnudeild UMF Stjörnunnar er staðfest.