Úrskurður í máli ÍA gegn Hafþóri Ægi Vilhjálmssyni
Samninga- og félagaskiptanefnd hefur kveðið upp úrskurð í máli ÍA gegn leikmanninum Hafþóri Ægi Vilhjálmssyni. ÍA krafðist þess að viðauki við samning leikmannsins yrði metinn ógildur, en Hafþór Ægir taldi viðaukann í fullu gildi.
Nefndin hafnaði kröfu ÍA.
Úrskurðarorðin eru þannig:
Hafnað er kröfum Knattspyrnufélagsins ÍA að viðauki við KSÍ samning dags. 16. september 2006 milli Knattspyrnufélagsins ÍA og Hafþórs Ægis Vilhjálmssonar verði metinn ógildur.