• fös. 06. okt. 2006
  • Landslið

U19 karla mætir Pólverjum í dag

U19_karla_Skotland
U19_karla_Skotland

Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sig er mætir Pólverjum í dag.  Leikurinn er liður í undankeppni fyrir EM og er leikið í Svíþjóð.  Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma.

Önnur lið í riðlinum eru Svíþjóð og Færeyjar.  Leikið verður við Svía á sunnudaginn og Færeyjar á miðvikudaginn.

Byrjunarliðið í dag: (4-5-1)

Markvörður: Atli Jónasson

Vinstri bakvörður: Almar Ormarsson

Hægri bakvörður: Hjörtur Logi Valgarðsson

Miðverðir: Þorvaldur Sveinn Sveinsson og Halldór Kristinn Halldórsson

Vinstri kantur: Arnór Smárason

Hægri kantur: Marko Pavlov

Tengiliðir: Bjarni Þór Viðarsson, fyrirliði og Skúli Jón Friðgeirsson

Sóknartengiliður: Birkir Bjarnason

Framherji: Rúrik Gíslason