Góður sigur á Pólverjum hjá U19
Íslenska U19 karlalandsliðið vann góðan sigur á Pólverjum í dag með tveimur mörkum gegn engu. Leikurinn var fyrsti leikur liðanna i undankeppni fyrir EM og er riðillinn leikinn í Svíþjóð.
Mörk Íslendinga gerðu þeir Rúrik Gíslason á 21. mínútu og Marko Pavlov á 46. mínútu. Tvö lið komast upp úr riðlinum en í hinum leik riðilsins sigruðu heimamenn í Svíþjóð Færeyinga, 4-1.