Guðlaug lék sinn síðasta landsleik gegn Portúgal
Guðlaug Jónsdóttir tilkynnti eftir leikinn gegn Portúgal í dag að hún hefði leikið sinn síðasta landsleik. Guðlaug á að baki langan og farsælan feril með landsliðinu og var leikurinn í dag 54. landsleikur hennar.
Það var vel við hæfi að íslenska liðið skyldi kveðja aldursforseta sinn með stórsigri á Portúgal. Guðlaug Jónsdóttir, sem varð 35 ára í síðustu viku, verður þó í eldlínunni innan skamms með liði sínu Breiðablik. Breiðablik leikur 2 leiki gegn Arsenal, heima og heiman og eru þeir leikir í 8. liða úrslitum í Evrópukeppni félagsliða kvenna.