Strákarnir í U17 leika við Rúmeníu í dag
Landslið U17 karla er statt í Rúmeníu þar sem þeir leika í undakeppni fyrir EM. Fyrsti leikur liðsins er í dag og er þá leikið við heimamenn. Hefst leikurinn kl. 14:00 að íslenskum tíma.
Á miðvikudag munu svo Íslendingar mæta Frökkum og á laugardag eru mótherjarnir Litháen.
Byrjunarliðið: (4-5-1)
Markvörður: Trausti Sigurbjörnsson
Varnarmenn: Magnús Helgason, Hólmar Örn Eyjólfsson, Eggert Rafn Einarsson, fyrirliði og Jóhann Laxdal
Miðjumenn: Ragnar Þór Gunnarsson, Andri Sigurjónsson, Björn Jónsson, Björn Bergmann Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson.
Framherji: Viktor Unnar Illugason