Árleg ráðstefna Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samvinnu við Knattspyrnusamband Íslands heldur sína árlegu ráðstefnu í tengslum við VISA-bikarúrslitaleik karla þann 30. september næstkomandi. Ráðstefnan fer fram á Grand Hóteli í Reykjavík og dagskráin hefst klukkan 10.00. Ráðstefnan kostar 2.500 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ en annars 5.000 krónur fyrir aðra og gengið er frá greiðslum fyrir upphaf ráðstefnunnar.
Dagskrá ráðstefnunnar:
10.00 Setning. Sigurður Þórir Þorsteinsson, formaður KÞÍ
10.05 Ólafur Garðarsson, UEFA umboðsmaður
10.30 Ásgeir Elíasson, fv. landsliðsþjálfari og þjálfari Fram
Taktík-Almennt um knattspyrnu.
11.00 Kaffi
11.15 Hugleiðingar fræðslustjóra KSÍ - Sigurður Ragnar Eyjólfsson
11.45 Tölfræði liðanna í bikarúrslitum
12.15 Þjálfari Keflavíkur : Kristján Guðmundsson
12.30 Þjálfari KR: Teitur Þórðarson
12.45 Hádegismatur
14.00 Bikarúrslitaleikur
Ráðstefnustjóri: Njáll Eiðsson
Skráning fer fram á netfangið kthi@isl.is eða hjá stjórnarmönnum KÞÍ (Sigurður Þórir Þorsteinsson, Jóhann Gunnarsson, Ómar Jóhannsson, Úlfar Hinriksson, Þórir Bergsson, Arnar Bill Gunnarsson og Kristján Guðmundsson). Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu KSÍ (siggi@ksi.is).