Dómur í máli Hauka gegn Þrótti
Dómstóll KSÍ hefur tekið fyrir mál Hauka gegn Þrótti varðandi leik í 1. deild kvenna A. Fór leikurinn fram 1. ágúst 2006 á Valbjarnarvelli og lauk með sigri Þróttar, 3-2. Dómstóllinn úrskurðar að úrslit leiksins skulu standa óhögguð.