U21 karla mætir Ítölum 1. september
Lúka Kostic, þjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Ítölum í riðlakeppni Evrópumóts U21 landsliða 2006/2007. Leikurinn er leikinn á Laugardalsvelli, föstudaginn 1. september kl. 19:00.
Íslenska liðið er í riðli með Austurríki og Ítalíu og gerði jafntefli við Austurríkismenn ytra á dögunum. Aðeins er leikið einu sinni við hvort lið og er því leikurinn við Ítali síðasti leikurinn í riðlinum hjá Íslandi.