Óbreyttur hópur fyrir leikinn gegn Svíum
Íslenska kvennalandsliðið leikur gegn Svíum á Laugardalsvelli, laugardaginn 26. ágúst kl. 14:00. Leikurinn er síðasti heimaleikur liðsins í riðlakeppni fyrir HM 2007. Svíar eru efstir í riðlinum og hafa aðeins tapað stigi gegn Íslendingum.
Jörundur Áki Sveinsson hefur tilkynnt hópinn er mætir Svíum og er óbreyttur hópur frá því í leiknum við Tékkland. Undirbúningurinn fyrir leikinn á laugardag, hefst í dag með fundi.