Miðasala á Ísland- Danmörk hefst á hádegi í dag
Miðasala á landsleik Íslands og Danmerkur, hefst kl. 12:00 í dag, þriðjudag. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 6. september kl. 18:05. Hægt er að kaupa miða á netinu og verslunum Skífunnar og BT-tölva.
Notast er við nýtt miðasölukerfi sem reynt var í fyrsta skipti í vináttulandsleiknum gegn Spáni og reyndist vel. Hægt er að kaupa miða á www.midi.is, í verslunum Skífunnar hér á höfuðborgarsvæðinu og verslunum BT-tölva á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.