Allir á völlinn kl. 16:00 á laugardag
Íslenska kvennalandsliðið leikur á morgun, laugardag, gegn Tékkum í undankeppni fyrir HM 2007. Leikið er á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 16:00. Ókeypis er á völlinn og getur stuðningur skipt sköpum fyrir stelpurnar í leiknum.
Liðin eru jöfn í öðru til þriðja sæti riðilsins og því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Leikurinn er skemmtileg viðbót við glæsilega menningardagskrá sem fer fram í höfuðborginni þennan dag. Það er upplagt fyrir alla fjölskylduna að koma og hvetja íslenska kvennalandsliðið í hörkuleik.