U21 karlalandsliðið leikur í dag
Í dag kl. 15:00 leika Íslendingar við Austurríkismenn í riðlakeppni fyrir EM hjá U21 landsliðum. Leikurinn er fyrsti leikur riðilsins en Ítalir skipa einnig þennan riðil. Aðeins er leikinn einn leikur við hvora þjóð.
Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á austurískri sjónvarpsstöð og er hægt að sjá leikinn m.a. á veitingahúsinu Ölver.
Byrjunarliðið:(4-5-1)
Markvörður: Hrafn Davíðsson
Hægri bakvörður: Birkir Már Sævarsson
Vinstri bakvörður: Gunnar Þór Gunnarsson
Miðverðir: Ragnar Sigurðsson og Bjarni Hólm Aðalsteinsson
Miðjumenn: Baldur Sigurðsson, Bjarni Þór Viðarsson og Theódór Elmar Bjarnason
Hægri kantur: Rúrik Gíslason
Vinstri kantur: Emil Hallfreðsson, fyrirliði
Framherji: Guðjón Baldvinsson
Leikurinn er mikilvægur fyrir íslenska liðið en leikið er svo við Ítali, hér heima, 1. september næstkomandi.
Mynd: Leikvöllurinn er leikið er á í Ritzing, Austurríki