Uppselt í sæti á Spánarleikinn
Í dag seldust upp síðustu miðarnir í sæti á vináttulandsleik Íslands og Spánar er hefst kl. 20:00, þriðjudaginn 15. ágúst. Enn er hægt að kaupa miða í stæði en forsöluafsláttur er til miðnættis í kvöld.
Hægt er að kaupa miða á netinu, hér á síðunni og á www.midi.is. Einnig er hægt að kaupa miða í verslunum Skífunnar hér á höfuðborgarsvæðinu og í verslunum BT-tölva á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Gefinn er forsöluafsláttur og er hann í gildi til miðnættis í kvöld, mánudagskvöld.