Aðeins nokkur hundruð miðar eftir í sæti
Miðasala á vináttulandsleik Íslands og Spánar, þriðjudaginn 15. ágúst, gengur mjög vel og í morgun voru nokkur hundruð miðar eftir í sæti. Ljóst er að sætismiðar munu seljast upp í dag en einnig er hægt að kaupa miða í stæði á þennan leik.
Hægt er að kaupa miða á netinu, hér á síðunni og á www.midi.is. Einnig er hægt að kaupa miða í verslunum Skífunnar hér á höfuðborgarsvæðinu og í verslunum BT-tölva á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.