Um 1000 miðar óseldir í sæti
Miðasala á vináttulandsleik Íslands og Spánar, er fram fer þriðjudaginn 15. ágúst kl. 20:00, gengur mjög vel. Í dag, sunnudag, eru aðeins um 1000 miðar óseldir í sæti. Einnig eru seldir miðar í stæði á þennan vináttulandsleik.
Fer nú hver að vera síðastur að tryggja sér miða á þennan stórleik og fara miðarnir hratt þessa stundina. Hægt er að kaupa miða hér á síðunni sem og á midi.is. Einnig er hægt að kaupa miða í verslunum Skífunnar hér á höfuðborgarsvæðinu sem og í verslunum BT-tölva á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.