Hópurinn er mætir Tékkum
Jörundur Áki Sveinsson hefur valið landsliðshópinn er mætir Tékkum, laugardaginn 19. ágúst kl. 16:00. Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2007 og er Ísland sem stendur í þriðja sæti riðilsins með jafnmörg stig og Tékkar.
Einn nýliði er í hópnum að þessu sinni en það er Katrín Ómarsdóttir. Þá kemur Ásthildur Helgadóttir inn liðið að nýju en hún var í leikbanni í síðasta leik gegn Portúgölum.