Frá áfrýjunardómstóli KSÍ
Dómþing áfrýjunardómstóls Knattspyrnusambands Íslands hefur tekið fyrir mál knattspyrnudeildar ÍA gegn knattspyrnudeild ÍR. Varðaði það leik á milli félaganna í 4. flokki A. sem fram fór 16. maí síðastliðinn.
Í dómsorðum segir eftirfarandi “Hinum áfrýjaða dómi er hrundið. Úrslit í leik ÍA og ÍR Íslandsmóti 4.fl. A. karla, sem fram fór þann 16. júní 2006, 1-0 skulu standa.”