Tap gegn Færeyingum
U17 karlalandslið Íslands beið í dag, lægri hlut gegn Færeyingum á Norðurlandamótinu sem fram fer í Færeyjum. Sigruðu heimamenn með tveimur mörkum gegn engu.
Færeyska liðið skoraði tvisvar sinnum í fyrri hálfleik og höfðu því forystu þegar flautað var til leikhlés. Hvorugu liðinu tókst svo að setja mark sinn á leikinn í seinni hálfleik og þar við sat.
Íslenska liðið leikur á laugardaginn um fimmta sætið á mótinu.
Mynd: Byrjunarliðið gegn Færeyingum í dag.