Aganefnd ávítir leikmann ÍA
Aganefnd tók fyrir á fundi sínum 1. ágúst 2006, mál vegna ummæla Bjarna Guðjónssonar leikmanns ÍA. Aganefnd álítur að ummæli Bjarna hafi verið ósæmileg samkvæmdt þeirri skilgreiningu sem fram kemur fram í 11. grein starfsreglna aganefndar KSÍ.
Eru Bjarna veittar ávítur vegna ummælanna og knattspyrnudeild ÍA sektuð um 10.000 kr. vegna framkomu hans.