U17 karla hefja leik í dag
Íslenska U17 karlalandsliðið hefur leik á Norðurlandamótinu í Færeyjum í dag. Fyrsti leikur þeirra er við Finna og hefst leikurinn kl. 13:30 að íslenskum tíma. Danir og Færeyingar eru einnig í riðli með Íslendingum.
Leikið verður við Dani á morgun, þriðjudaginn 1. ágúst og við heimamenn 3. ágúst. Leikir um sæti fara svo fram laugardaginn 5. ágúst.
Lúka Kostic hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Finnum og er það eftirfarandi:
Markvörður: Vignir Jóhannsson
Vinstri bakvörður: Kristinn Jónsson
Hægri bakvörður: Magnús Helgason
Miðverðir: Frans Elvarsson og Eggert Rafn Einarsson fyrirliði
Vinstri kantur: Kolbeinn Sigþórsson
Hægri kantur: Kristinn Steindórsson
Tengiliðir: Hólmar Örn Eyjólfsson, Brynjar Benediktsson og Björn Jónsson
Framherji: Viktor Unnar Illugason