Úrskurður í máli Buddy Farah gegn Keflavík
Samninga- og félagaskiptanefnd hefur úrskurðað í máli leikmannsins Buddy Farah gegn Keflavík, en leikmaðurinn gerði þær kröfur að staðfest yrði að samningur hans við félagið væri ekki lengur í gildi.
Nefndin féllst á þær kröfur og úrskurðaði að leikmannasamningur Buddy Farah og Keflavíkur sé ekki lengur í gildi.