Kristinn dæmdi viðureign Austurríkis og Belgíu
Kristinn Jakobsson dæmir þessa dagana í úrslitakeppni EM U19 karla, sem fram fer í Póllandi. Á sunnudag dæmdi hann viðureign Austurríkis og Belgíu, sem lauk með 4-1 sigri Austurríkismanna. Kristinn sýndi fimm gul spjöld í leiknum og dæmdi tvær vítaspyrnur.
Kristinn heldur áfram í keppninni, en 2 dómarar af 6 hafa lokið þátttöku sinni. Ljóst er að hann mun því annað hvort dæma annan undanúrslitaleikinn - eða verða dómari eða varadómari á úrslitaleiknum.