Stelpurnar gerðu jafntefli við Bandaríkin
Íslenska U21 kvennalandsliðið gerði jafntefli við Bandaríkjamenn á Norðurlandamóti U21 kvenna er fram fer í Noregi. Lokatölur urðu 1-1 og kom Margrét Lára Viðarsdóttir Íslendingum yfir áður en Bandaríkin jöfnuðu úr vítaspyrnu.
Þetta er gríðarlega góður árangur hjá íslensku stelpunum því bandaríska liðið þykir vera geysisterkt. Lokaleikur íslenska liðsins í riðlinum er á fimmtudaginn þegar þær mæta Danmörku. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma. Á laugardag verður svo leikið um sæti á mótinu.