U21 kvenna heldur til Noregs
Íslenska U21 landslið kvenna heldur Noregs á morgun til að taka þátt á Norðurlandamóti U21 kvenna. Leikið verður í Stavanger og eiga stelpurnar sinn fyrsta leik á sunnudag þegar þær takast á við stöllur sínar frá Noregi.
Aðrir leikir liðsins eru svo á þriðjudaginn þegar leikið verður við Bandaríkin og á fimmtudag, þegar leikið er við Dani.
Á laugardag er svo leikið um sæti á mótinu en liðið er svo væntanlegt aftur heim, sunnudaginn 23. júlí.