Glæsilegur sigur á Hollendingum
Norðurlandamótið hjá U17 kvenna hófst í dag í Finnlandi og léku íslensku stelpurnar við Holland í sínum fyrsta leik. Gerðu þær sér lítið fyrir og sigruðu hollenska liðið með einu marki gegn engu. Það var Fanndís Friðriksdóttir sem skoraði markið á 5. mínútu.
Þetta var jafnframt fyrsti leikur hjá Jóni Óla Daníelssyni með liðið og byrjar hann eins vel og hægt er. Næsti leikur hjá stelpunum er á morgun, þriðjudag, þegar að þær mæta Þjóðverjum. Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma.