Lúðvík S. Georgsson í leyfisnefnd UEFA
Lúðvík S. Georgsson, formaður leyfisráðs og mannvirkjanefndar KSÍ, hefur verið valinn til setu í leyfisnefnd UEFA, þeirri nefnd sem fer með málefni leyfiskerfisins innan UEFA.
Í nefndinni sitja 10 menn frá jafn mörgum löndum og er valið til tveggja ára í senn:
- Angelo Carlos Brou, Portúgal (nýr)
- Eduard Dervishi, Spáni
- Mario Gallavotti, Ítalíu (nýr)
- Lúðvík S. Georgsson, Íslandi (nýr)
- Alex Horne, Englandi
- Aivaz Kaziakhmedov, Rússlandi (nýr)
- Jacques Lagnier, Frakklandi
- Krister Malmsten, Svíþjóð
- Christian Müller, Þýskalandi
- Ales Zavrl, Slóveníu (nýr)