Luka heimsækir Reykjanesbæ
Landsliðsþjálfari U17 og U21, Luka Kostic, sinnir útbreiðslu- og fræðslustarfi KSÍ. Heimsækir hann aðildarfélög um allt land og á morgun, miðvikudag, er komið að því að heimsækja Reykjanesbæ.
Á dagskrá Luka er bæði bóklegt efni sem og verklegar æfingar. Viðtökur við heimsóknum Luka hafa verið mjög góðar og eru viðkomandi aðildafélög hvött til að nýta tækifærið.