• fös. 02. jún. 2006
  • Leyfiskerfi

Stjórn KSÍ samþykkir nýja leyfishandbók KSÍ

Frá Laugardalsvelli
IMG_9697

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum á fimmtudag nýja leyfishandbók KSÍ - útgáfu 2,0. Vinna við handbókina hefur staðið yfir í vetur og mun hún taka gildi fyrir næsta leyfisferli sem hefst í nóvember.

Uppsetning nýrrar handbókar er eilítið frábrugðin fyrri útgáfu og sú nýja er einnig einfaldari. Kröfur eru auknar á ákveðnum sviðum og verður það kynnt síðar. Stjórnin samþykkti einnig að leyfiskerfi KSÍ skyldi frá og með næsta leyfisferli einnig ná til 1. deildar karla.