Byrjunarlið Íslands gegn Andorra
Lúka Kostic landsliðsþjálfari U21 karla hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Andorra á Akranesvelli kl. 18:15. Stillt er upp í leikaðferðina 4-3-3 og stefnt á að brjóta vörn Andorra á bak aftur en fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli.
Byrjunarliðið (4-3-3)
Markvörður
Hrafn Davíðsson
Hægri bakvörður
Pálmi Rafn Pálmason
Vinstri bakvörður
Gunnar Þór Gunnarsson
Miðverðir
Ragnar Sigurðsson og Baldur Sigurðsson
Varnartengiliður
Davíð Þór Viðarsson
Tengiliðir
Bjarni Þór Viðarsson og Theódór Elmar Bjarnason
Framherjar
Birkir Bjarnason, Guðjón Baldvinsson og Emil Hallfreðsson
Knattspyrnuáhugamenn eru hvattir til þess að mæta á leikinn upp á Skaga og styðja strákana til sigurs. Aðgangur á leikinn er ókeypis og hann hefst, eins og áður sagði, kl. 18:15.