U21 hópurinn gegn Andorra
Lúkas Kostic, þjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Andorra á Akranesvelli á fimmtudaginn kemur. Leikurinn er seinni leikur þjóðanna og er leikið um sæti í riðlakeppni EM 2007.
Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli en leikið var í Andorra 3. maí síðastliðinn. Sigurvegari þessarar viðureignar fer í riðlakeppni EM 2007 og leikur þar gegn Ítalíu og Austurríki.