Kvennalandsliðið upp um eitt sæti
Íslenska kvennalandsliðið fer upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA. Hafa þær sætaskipti við landslið Úkraínu og stíga upp í 18. sætið. Heims- og Evrópumeistarar Þjóðverja eru, sem fyrr, á toppi styrkleikalistans.
Íslenska karlalandsliðið fellur hinsvegar um tvö sæti, í sæti 99, en landsliðið spilaði síðast 28. febrúar. Næsti listi verður birtur 12. júlí og má búast við miklum breytingum á þeim lista. Er það bæði vegna þess að Heimsmeistarakeppnin verður þá nýlega yfirstandandi sem og að FIFA mun kynna nýja aðferð við útreikning styrkleikalistans. Verður nýtt reiknilíkan kynnt á lokaviku HM 2006 í Þýskalandi.