• þri. 16. maí 2006
  • Landslið

Ásthildur í banni

Alidkv2003-0315
Alidkv2003-0315

Ásthildur Helgadóttir landsliðsfyrirliði hlaut sína aðra áminningu í forkeppni HM í leiknum gegn Hvíta-Rússlandi 6. maí síðastliðinn og verður í leikbanni í landsleik Íslands og Portúgal sem fram fer 18. júní næstkomandi.

Leikurinn við Portúgal verður 100. leikur A-landsliðs kvenna frá upphafi.  Fyrsti leikurinn var leikinn 20. september 1981 og var leikið við Skota ytra.  Lauk leiknum með sigri Skota, 3-2.  Bryndís Einarsdóttir og Ásta B. Gunnlaugsdóttir skoruðu mörk Íslands í þeim leik.

Skotland-Ísland