Luka til Ísafjarðar á föstudaginn
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 og U21 karla, heldur áfram för sinni á milli félaga um allt land. Ísafjörður er áfangastaðurinn í þetta skiptið og mun Luka þar fara yfir áhersluatriði með þjálfurum í nágrenninu.
Í heimsókn sinni fer Luka yfir æfingar og áherslur, jafnt verklegar sem bóklegar. Hægt er að nálgast upplýsingar um verkefnið undir Hæfileikamótun hér til vinstri á síðunni.