Hvíta Rússland - Ísland beint á RÚV
Leikur Hvíta Rússlands og Íslands, í undankeppni HM kvenna 2007, verður í sýndur í beinni útsendingu. Leikurinn er laugardaginn, 6. maí og hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma. Leikið verður á Darida Stadium í Minsk.
Það er fagnaðarefni að allir landsmenn fái að sjá íslenska kvennalandsliðið leika á erlendri grundu. Þetta er þriðja sinn sem að leikur með íslenska kvennalandsliðinu er sýndur beint af erlendri grundu. Ríkissjónvarpið hefur brugðist vel við auknum áhuga á kvennaknattspyrnu hér á landi sem, ekki síst, stafar af góðum árangri A-landsliðs kvenna.
Leikurinn hefst kl. 14:00 á laugardaginn og verður það stelpunum án efa mikil hvatning að vita að landsmenn hafi augun á þeim.