Áhersluatriði dómaranefndar KSÍ 2006
Áhersluatriði Dómaranefndar KSÍ árið 2006 eru svipuð og undanfarin ár. Þau byggja á fyrri reynslu hér á landi, fyrirmælum og leiðbeiningum FIFA og UEFA, svo og áherslum knattspyrnusambanda á Norðurlöndum.
Áherslur dómaranefndar KSÍ 2006 eru svipaðar og verið hafa undanfarin ár og byggjast þær á eftirfarandi grunnatriðum:
- Vernda leikmenn fyrir alvarlega grófum og hættulegum leikbrotum.
- Heiðarleiki og háttvísi í íslenskri knattspyrnu – utan vallar sem innan.
Áhersluatriðin taka mið af knattspyrnulögunum, leiðbeiningum FIFA og UEFA, leiðbeiningum í nágrannalöndum og af reynslu fyrri ára hér á landi. Dómarar KSÍ munu hafa þessi atriði í huga í komandi leikjum frá og með 14. maí 2006 og er æskilegt að aðrir þátttakendur, t.d. þjálfarar og leikmenn, kynni sér þau.