A landslið kvenna gegn Hvít-Rússum valið
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur tilkynnt liðið sem mætir Hvít-Rússum ytra þann 6. maí nk. Leikurinn er liður í undankeppni HM 2007.
Þetta er fjórði leikur Íslands í riðlinum og hefur liðið hlotið 4 stig til þessa. Þessar þjóðir mættust á Laugardalsvelli á síðasta ári og fóru þá íslensku stelpurnar með sigur af hólmi, 3-0. Dóra María Lárusdóttir skoraði tvö mörk í þeim leik og Margrét Lára Viðarsdóttir eitt.