Enn hægt að fá miða á HM 2006 á netinu
Ennþá eru eftir miðar á HM 2006 í Þýskalandi sem hefst 9. júní. Fimmta þrep söluferlis FIFA hefst 1. maí en einungis er hægt að kaupa miða á sérstakri HM síðu FIFA.
Þeir sem vilja krækja sér í miða á þennan stórviðburð eru því hvattir til þess að kynna sér málin á síðunni. Salan, er hefst 1. maí, er með fyrirkomulaginu "Fyrstur kemur, fyrstur fær" og verður því áreiðanlega handagangur í öskjunni á þessum frídegi verkalýðsins.