Luka heimsækir Egilsstaði á þriðjudaginn
Útbreiðslu- og þjálfunarverkefni KSÍ heldur áfram undir stjórn Luka Kostic. Nú er komið að því að heimsækja Egilsstaði og mun Luka vera þar þriðjudaginn 25. apríl. Dagskrá hans byggir bæði á verklegum og bóklegum æfingum og hefst kl 17:00 með þeim bóklegu.
Luka, sem einnig er þjálfari U17 og U21 árs landsliða Íslands, hefur heimsótt fjölmörg félög upp á síðkastið. Hægt er að fræðast meira um þetta verkefni hér til hliðar undir Hæfieikamótun.