Landsdómararáðstefna á Selfossi
Um helgina hittast landsdómarar á Selfossi og búa sig undir sumarið. Verður þar farið yfir breyttar áherslur í dómgæslu og breytingar á knattspyrnulögunum.
Ýmsir fyrirlestrar verða á dagskránni og meðal fyrirlesara verður Keith Hackett. Hackett þessi er yfirmaður dómaramála í ensku úrvalsdeildinni og mun miðla af reynslu sinni til íslenskra dómara.
Dómararnir, líkt og leikmenn, eru nú á lokastigum síns undirbúnings. Hafa þeir m.a. gengið undir þrekpróf á síðustu dögum og um helgina gangast þeir einnig undir skrifleg próf.