Luka í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn
Landsliðsþjálfari U17 og U21 árs landsliðs Íslands, Luka Kostic sinnir útbreiðslu- og þjálfunarverkefnum fyrir KSÍ. Hefur hann sótt fjölmörg lið um allt land hingað til og þriðjudaginn, 18. apríl, er komið að Vestmannaeyjum.
Í heimsókn sinni fer Luka yfir æfingar og áherslur, jafnt verklegar sem bóklegar. Hægt er að nálgast upplýsingar um verkefnið undir Hæfileikamótun hér til vinstri á síðunni.
Nánari upplýsingar um dagskránna í Vestmannaeyjum er hægt að nálgast hjá Heimi Hallgrímssyni.