Luka í Fífunni í dag
Lúka Kostic, sem sinnir útbreiðslu- og þjálfunarverkefnum fyrir KSÍ, heldur áfram heimsóknum sínum til aðildarfélaga. Í dag, kl. 17:15, verður hann í knattspyrnuhúsinu Fífunni í Kópavogi.
Landinu hefur verið skipt upp í svæði og heimsækir Luka öll þessi svæði. Í dag er það svæði 12 en því tilheyra: Haukar, Álftanes, FH, Breiðablik, HK og Stjarnan.
Bæði eru um að ræða verklegar æfingar og bóklegar. Þær verklegu eru á undan og hefjast kl. 17:15.
Nánar er hægt að lesa um þetta verkefni með því að smella á Hæfileikamótun hér til vinstri.