Landsliðsæfingar U19 kvenna um páskana
Á þriðja tug leikmanna hafa verið boðaðir á æfingar U19 landsliðs kvenna sem fram fara á Fylkisvelli um páskana - dagana 12. til 15. apríl.
Æfingarnar eru hluti af lokaundirbúningi liðsins fyrir EM milliriðil, sem fram fer í Búkarest í Rúmeníu í lok apríl. Þjálfari U19 landsliðs kvenna er Ólafur Þór Guðbjörnsson.