Hefur nú þegar heimsótt fjölmörg félög
Lúka Kostic, sem sinnir útbreiðslu- og þjálfunarverkefnum fyrir KSÍ, hefur þegar heimsótt fjölmörg félög á ferð sinni um landið.
Luka hefur nú þegar heimsótt félög á svæði 1, 2, 3, 4 og 5 hér að neðan, sem og félög á svæðum 13 og 14.
Félög á svæði 9 heimsækir hann á fimmtudag, eins og fyrr hefur verið greint frá.
Svæði 12 verður væntanlega heimsótt í næstu viku, Vestmannaeyjar (svæði 8) verða heimsóttar strax eftir páskafrí og svæði 11 verður heimsótt í sumar. Ákveðið verður síðar hvenær önnur svæði verða heimsótt.
Smellið á Hæfileikamótun í valmyndinni hér til vinstri til að lesa meira um verkefnið.
Svæði 1:
Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Reynir Sandgerði, Þróttur Vogum og Víðir.
Svæði 2:
ÍA og Skallagrímur.
Svæði 3:
Selfoss, Hamar, KFR (Hella/Hvolvöllur) og Ægir Þorlákshöfn.
Svæði 4:
KA, Þór, Dalvík, Húsavík, Grenivík og Ólafsfjörður.
Svæði 5:
Víkingur Ólafsvík, Grundarfjörður og Snæfell.
Svæði 6:
Ísafjörður og Bolungarvík
Svæði 7:
Tindastóll, KS og Hvöt.
Svæði 8:
ÍBV.
Svæði 9:
Einherji, Huginn, Höttur, Valur Reyðarfirði, Þróttur N, Austri, Leiknir F og Neisti D.
Svæði 10:
Sindri.
Svæði 11:
Hörður Patreksfirði, Bíldudalur og Tálknafjörður.
Svæði 12:
Haukar, Álftanes, FH, Breiðablik, HK og Stjarnan.
Svæði 13:
ÍR, Leiknir, Fjölnir, Fylkir og Afturelding.
Svæði 14:
Fram, Víkingur, Þróttur, Valur, KR og Grótta.