Úrskurðaðir í tveggja mánaða bann
Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum 27. mars að úrskurða þjálfara meistaraflokks kvenna hjá FH í tveggja mánaða leikbann og einn meðlim kvennaráðs félagsins í tveggja mánaða bann frá öllum stjórnunarstörfum í knattspyrnu.
Eftir leik FH og Stjörnunnar í Deildarbikarkeppni KSÍ 4. mars síðastliðinn kom í ljós að FH skráði Elísabetu Pétursdóttur á leikskýrslu þrátt fyrir að hún tæki ekki þátt í leiknum. Hið sanna er að Mist Elíasdóttir lék leikinn, en nafn hennar var ekki skráð á leikskýrsluna. Mist Elíasdóttir var á þeim tíma leikmaður KR.
Sakir þessa ákvað stjórn KSÍ á fundi sínum 27. mars, í samræmi við greinar 4.3.4. og 4.4.4. í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót, að úrskurða Dragi Pavlov, þjálfara FH í ofangreindum leik, í tveggja mánaða leikbann og Pétur Svavarsson, kvennaráði FH, í tveggja mánaða bann frá öllum stjórnunarstörfum í knattspyrnu. Í báðum tilfellum gildir bannið frá 27. mars til og með 26. maí.
Jafnframt er félagið sektað um kr. 30.000.