KSÍ heldur II.stigs þjálfaranámskeið á Egilsstöðum
KSÍ heldur II.stigs þjálfaranámskeið á Egilsstöðum helgina 31. mars - 2.apríl.
Bóklegur hluti námskeiðsins fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum og verklegi hlutinn í Íþróttamiðstöðinni eða á sparkvelli.
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og því þurfa þátttakendur að hafa með sér útbúnað til knattspyrnuiðkunar, bæði fyrir innanhúsknattspyrnu og til að leika á sparkvelli.
Þátttakendur þurfa að hafa lokið framhaldsskólaáfanga í knattspyrnu með einkunnina 7.0 að lágmarki, eða hafa lokið við KSÍ I þjálfaranámskeið eða hafa lokið A-stigi í gamla þjálfaramenntunarkerfi KSÍ.
Fyrirhugað er að halda KSÍ III þjálfaranámskeið á Akureyri helgina 28-30. apríl og því ættu þátttakendur á þessu námskeiði að geta tekið það námskeið í framhaldinu.
Námskeiðið kostar 14.000 krónur. Hægt er að leggja inn á reikning KSÍ eða gera upp á staðnum við upphaf námskeiðs.
Reikningur KSÍ: 0101-26-700400
Kennitala KSÍ: 700169-3679
Skráning er hafin hjá Sigurði Ragnari Eyjólfssyni fræðslustjóra KSÍ sem veitir allar nánari upplýsingar (siggi@ksi.is) eða í síma 510-2909, en við skráningu þarf að taka þarf fram fullt nafn, kennitölu, fullt heimilisfang, GSM síma, nafn félags og netfang.
Kennarar á námskeiðinu verða Þorlákur Árnason og Árni Ólason. Árni Ólason tekur einnig á móti skráningum (861-9087 eða arniola@me.is)