U19 landslið kvenna æfir um næstu helgi
Tæplega 30 leikmenn frá 9 félögum verið boðaðir á æfingar U19 landsliðs kvenna um næstu helgi.
Æft verður á Fylkisvelli á laugardeginum og í Egilshöll á sunnudeginum.
Æfingarnar fara fram undir stjórn Ólafs Þórs Guðbjörnssonar, þjálfara U19 landsliðsins.
Flestir leikmenn koma frá Breiðabliki (8), en leikmenn frá Fjölni (4) eru einnig áberandi.