Ólöglegir leikmenn með Magna gegn Hetti
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að tveir leikmenn, Atli Már Rúnarsson og Sveinn Gíslason, léku ólöglegir með liði Magna í leik gegn Hetti í Deildarbikar karla sunnudaginn 12. mars síðastliðinn. Báðir leikmennirnir eru skráðir í Þór.
Úrslit leiksins standa þó óbreytt í samræmi við reglugerð, þar sem Höttur vann leikinn 5-2.